Huginn 0 - 1 Njarðvík
0-1 Theodór Guðni Halldórsson ('73)
0-1 Theodór Guðni Halldórsson ('73)
Njarðvík vann óvæntan 1-0 útisigur á Seyðisfirði þegar liðið heimsótti Huginn í leik sem var gríðarlega mikilvægur fyrir bæði lið.
Theodór Guðni Halldórsson skoraði eina mark leiksins þegar rúmur stundarfjórðungur var eftir og tryggði Njarðvíkingum dýrmæt þrjú stig.
Huginn er því í 3. sæti deildarinnar eftir tapið og mistókst liðinu að fara upp fyrir ÍR. Þetta tap gæti reynst dýrkeypt í baráttunni um sæti í 1. deild, en Njarðvík fór hins vegar upp úr fallsæti með sigrinum.
Athugasemdir