Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 29. ágúst 2015 17:04
Elvar Geir Magnússon
4. deild: Þróttur Vogum burstaði Riddarann - ÍH vann
Mynd: Þróttur Vogum
Þróttur Vogum er komið með annan fótinn í undanúrslit 4. deildarinnar eftir 4-0 útisigur gegn Hvíta Riddaranum í fyrri viðureign liðanna í 8-liða úrslitum. Það er bæjarhátíð í Mosfellsbæ en gestirnir fögnuðu á meðan tveir leikmenn Riddarans fengu rautt.

Þá vann ÍH flottan útisigur gegn KH og er í góðri stöðu. Síðari leikirnir verða á þriðjudaginn.

Hvíti Riddarinn 0 - 4 Þróttur Vogum
0-1 Kristinn Aron Hjartarson (3')
0-2 Páll Guðmundsson (44')
0-3 Páll Guðmundsson (70')
0-4 Ragnar Valberg Sigurjónsson (83')
Rauð spjöld: Arnór Fannar Theódórsson (43'), Sigurbjartur Sigurjónsson (90') (Báðir í Hvíta Riddaranum)

KH 1 - 2 ÍH
0-1 Andri Magnússon ('19)
0-2 Örn Rúnar Magnússon ('24)
1-2 Axel Ingi Magnússon ('28)
Rautt spjald. Steinar Logi Sigurþórsson ('41)
Athugasemdir
banner
banner