Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 29. ágúst 2015 12:45
Ívan Guðjón Baldursson
Axel Óskar skoraði tvö gegn Arsenal
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Axel Óskar Andrésson er 17 ára piltur sem fór frá Aftureldingu til Reading í fyrra.

Hjá Reading hefur Axel fest sig í sessi sem byrjunarliðsmaður hjá U18 ára liðinu sem er búið að vinna alla þrjá leiki sína á tímabilinu.

Síðasti sigur Reading í unglingadeildinni kom gegn Arsenal sem er þekkt fyrir að eiga eitt besta unglingastarf á Englandi og víðar.

Axel og félagar gerðu sér lítið fyrir og unnu leikinn 4-1 og skoraði Axel, sem leikur sem miðvörður, tvö mörk úr föstum leikatriðum.
Athugasemdir
banner
banner
banner