Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   lau 29. ágúst 2015 17:18
Ívan Guðjón Baldursson
Bilic: Við lögðum rútunni
Mynd: Getty Images
Slaven Bilic, stjóri West Ham, var að vonum ánægður með fyrsta sigur West Ham á Anfield í 52 ár.

Hamrarnir gerðu þrjú mörk í leiknum gegn Liverpool og segir Bilic að áætlun sín hafi gengið fullkomlega upp.

„Við byrjuðum vel og áttum góðan leik. Við vorum skipulagðir og vorum með áætlun sem leikmennirnir fylgdu og það gekk allt fullkomlega upp," sagði Bilic eftir leik.

„Leikmennirnir hreyfðu sig mjög vel, voru einbeittir og héldu boltanum vel innan liðsins.

„Við lögðum rútunni án þess að setja handbremsuna á. Þetta var frábær varnarleikur."

Athugasemdir
banner
banner