Derby County 1 - 2 Leeds United:
0-1 Tom Adeyemi ('43)
1-1 Chris Martin ('48)
1-2 Chris Wood ('88)
0-1 Tom Adeyemi ('43)
1-1 Chris Martin ('48)
1-2 Chris Wood ('88)
Derby County og Leeds United eru talin vera meðal betri liða Championship deildarinnar en gerðu bæði fjögur jafntefli í fjórum fyrstu deildarleikjunum.
Liðin mættust í fyrsta leik dagsins sem var mjög jafn en gríðarlega fjörugur þar sem liðin áttu samanlagt tæplega 30 skot.
Tom Adeyemi kom Leeds yfir rétt fyrir hálfleik og Chris Martin jafnaði fyrir Derby snemma í síðari hálfleik.
Það var Chris Wood sem gerði sigurmark Leeds skömmu fyrir leikslok og tryggði mikilvæg þrjú stig. Leeds er því með 7 stig eftir 5 umferðir en Derby er með 4 stig.
Athugasemdir