Villarreal er búið að fá Denis Suarez til sín frá Barcelona og er leikmaðurinn búinn að skrifa undir fjögurra ára samning við félagið.
Suarez var á tveggja ára lánssamning hjá Sevilla, en ákvað að fara frekar til Villarreal þrátt fyrir byrjunarliðssæti hjá Evrópudeildarmeisturunum.
Suarez var á tveggja ára lánssamning hjá Sevilla, en ákvað að fara frekar til Villarreal þrátt fyrir byrjunarliðssæti hjá Evrópudeildarmeisturunum.
Suarez er 21 árs gamall og hefur spilað fyrir öll yngri landslið Spánar, allt frá U17 upp í U21.
Hann spilar sem sóknarsinnaður miðjumaður og gerði tvö deildarmörk í 31 leik fyrir Sevilla á síðasta tímabili.
Barcelona hefur rétt til þess að kaupa leikmanninn aftur til baka næsta og þarnæsta sumar, en ekkert kaupverð er gefið upp.
Athugasemdir