Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 29. ágúst 2015 18:24
Elvar Geir Magnússon
England: Þriðja jafntefli Tottenham í fjórum leikjum
Nacer Chadli með marktilraun.
Nacer Chadli með marktilraun.
Mynd: Getty Images
Tottenham 0 - 0 Everton

Markalaust jafntefli varð niðurstaðan í viðureign Tottenham og Everton, síðdegisleiknum í enska boltanum.

Harry Kane og Ryan Mason, leikmenn Tottenham, komust nálægt því að skora í fyrri hálfleik en Tim Howard, markvörður Everton, sá við þeim.

Tottenham náði að koma knettinum í netið í seinni hálfleik en dæmd var rangstaða. Þá vildi Everton fá víti en Mike Jones, góður dómari leiksins, gerði rétt með því að dæma ekkert.

Tottenham hefur gert þrjú jafntefli í fyrstu fjórum leikjum sínum og er með þrjú stig í 15. sæti. Everton er með fimm stig í níunda sæti.
Athugasemdir
banner