„Liðið barðist gríðarlega vel," sagði Gunnar Guðmundsson þjálfari Gróttu sem var svekktur eftir 0-1 tap gegn Þór í 1. deild karla í dag.
Lestu um leikinn: Grótta 0 - 1 Þór
„Mér fannst við detta aðeins niður eftir að við fengum markið á okkur, þá áttum við svolítið erfitt uppdráttar í kjölfarið á því. Svo vantaði herslumuninn uppá í lokin að við myndum ná stiginu. Því miður tókst það ekki í dag."
Grótta er í harðri fallbaráttu við Selfoss sem er fyrir ofan þá í deildinni og hefðu þeir náð að vinna í dag er ljóst að þeir færu úr fallsætinu. Þeir eiga þó möguleika í næsta leik þegar liðin mætast innbyrðis.
„Við gerðum okkur allir grein fyrir því að sénsinn var í dag og sénsinn var líka um síðustu helgi á móti Haukunum. Því miður höfum við ekki gripið tækifærin og nú er leikurinn á móti Selfossi næst og við verðum að mæta grimmir í hann og taka sigur þar."
Nánar er rætt við hann í sjónvarpinu að ofan.
Athugasemdir