Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   lau 29. ágúst 2015 07:00
Arnar Geir Halldórsson
Januzaj ekki með gegn Swansea - Líklegt byrjunarlið
Januzaj fagnar marki sínu gegn Aston Villa
Januzaj fagnar marki sínu gegn Aston Villa
Mynd: Getty Images
Adnan Januzaj er meiddur og ferðast ekki með Man Utd til Wales þar sem liðið mætir Gylfa Sigurðssyni og félögum í Swansea á morgun.

Januzaj var tekinn af velli í hálfleik gegn Club Brugge í vikunni þegar Man Utd vann 4-0 sigur.

Louis van Gaal, stjóri Man Utd, staðfesti á blaðamannafundi í gær að skiptingin hafi verið vegna meiðsla og mun hann ekki spila á morgun.

Belginn ungi hefur byrjað síðustu fjóra leiki Man Utd en hann var aðeins sjö sinnum í byrjunarliðinu á síðustu leiktíð.

Ásamt Januzaj er Phil Jones á meiðslalistanum og þá er Marcos Rojo enn að koma sér í leikform en hann lék 60 mínútur með varaliði félagsins á fimmtudag.

Hér að neðan má sjá líkleg byrjunarlið að mati Guardian í leiknum á morgun.
Athugasemdir
banner