Kevin de Bruyne er á leið til Manchester City fyrir um 55 milljónir punda og er belgíska stjarnan lent í Manchester til að ganga undir læknisskoðun.
De Bruyne hefur verið orðaður við brottför frá Wolfsburg í allt sumar og nú er loksins komið að félagsskiptunum.
De Bruyne hefur verið orðaður við brottför frá Wolfsburg í allt sumar og nú er loksins komið að félagsskiptunum.
De Bruyne er 24 ára gamall og er þekktur fyrir að gefa mikið að stoðsendingum auk þess sem hann hefur verið iðinn við markaskorun í Þýskalandi.
Leikmaðurinn var hjá Chelsea í tvö ár en var alltaf lánaður út þar sem hann komst ekki fyrir í stjörnum prýddu byrjunarliði.
Athugasemdir