Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
Bestur í Mjólkurbikarnum: Vakinn með símhringingu - „Á Jölla mikið að þakka"
Sigdís Eva: Vissum að við gætum þetta og sýndum það í leiknum
Pétur: Það var ekkert lið inni á vellinum
John Andrews: Vorum að spila gegn líklega besta liði landsins
Kallaði þetta gott eftir fimm hnéaðgerðir og fær góð ráð frá pabba sínum
Þurfti að róa Pablo eftir leik - „Leikmenn eiga ekki að skipta sér af áhorfendum“
„Ef þetta heldur svona áfram verða bara allir í banni eftir smá stund"
Hefði sætt sig við jafntefli - „Ég held að við höfum reynt 5 eða 6 plön í þessum leik“
Alex Freyr ósáttur: Þetta er bara sorglegt
Eysteinn á von á geggjuðum leik - „Jölli er alltaf Jölli í Portúgal"
Arnór Smára: Hafði persónulega mikla þýðingu fyrir mig
Draumadráttur Jökuls: Augnablik á stóran hluta af mínu hjarta og mun alltaf gera
Kjartan Henry: Hallgrímur sá ekki til sólar eftir það
Var vítaspyrnudómurinn í Árbæ rangur?
Lék sinn fyrsta leik í efstu deild og vildi víti - „Fann fyrir snertingu og lét mig detta"
Líður eins og Valsarar hafi tapað leiknum - „Hafði aldrei trú á því að hann væri að fara skora"
Arnar Grétars: Gerði mikið fyrir okkur að vera með frábæran markmann
Svekktur yfir því að vinna ekki Val - „Mjög dapurt víti, svo við tölum hreint út“
Jón Þór: Bíð jafn spenntur og þú
Viktor Jóns: Get skorað mörk hvar sem er
   lau 29. ágúst 2015 18:29
Arnar Daði Arnarsson
Lárus Guðmunds: Þetta eru allt atvinnumenn
Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson
Lárus Guðmundsson, þjálfari KFG var ánægður með 1-0 sigur sinna manna gegn Augnablik á heimavelli í fyrri umferð liðanna í 8-liða úrslitum 4. deildar karla.

KFG komst yfir í leiknum eftir mínútu leik og héldu því þannig til loka.

„Við skoruðum snemma og það var það sem við stefndum að. Síðan fengum við ótal tækifæri til að bæta við í seinni hálfleik en við nýttum það ekki."

„Við héldum hreinu og spiluðum taktískt frábærlega þannig ég er ánægður með leikinn."

Seinni leikurinn fer fram á þriðjudaginn, á heimavelli Augnablik.

„Við leggjum þann leik upp með sama hætti. Þetta er fjórði leikurinn í röð sem við höldum hreinu og við stefnum á að halda hreinu í næsta leik líka og síðan reynum við að setja inn mark."

„Þeir voru svipaðir eins og ég bjóst við. Þetta eru allt atvinnumenn sem þeir eru með og fara ekki inn á völlinn nema fá greitt fyrir það, þeir komu mér ekkert á óvart," sagði Lárus Guðmundsson.

Viðtalið í heild sinni er hægt að sjá í sjónvarpinu hér að ofan.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner