banner
   lau 29. ágúst 2015 15:04
Ívan Guðjón Baldursson
Heimild: Visir 
Myndband: West Ham tveimur yfir á Anfield - Lovren sekur
Mynd: Getty Images
West Ham er tveimur mörkum yfir gegn Liverpool á Anfield Road og hefst síðari hálfleikur innan skamms.

Manuel Lanzini gerði fyrsta markið eftir þrjár mínútur og átti stóran þátt í öðru markinu sem má sjá hér fyrir neðan.

Dejan Lovren gerðist sekur um stór mistök í aðdraganda annars marksins sem Mark Noble skoraði.

Lovren var þá heppinn að halda boltanum undir pressu frá Lanzini, sem hætti þó ekki og keyrði aðstoðardómarann meðal annars niður.

Lanzini elti Lovren, sem missti einbeitinguna, vann af honum boltann alltof auðveldlega og gaf fyrir.


Athugasemdir
banner
banner
banner