Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 29. ágúst 2015 15:21
Ívan Guðjón Baldursson
Noregur: Guðbjörg hélt hreinu - Sjö stiga forysta á toppnum
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Guðbjörg Gunnarsdóttir hélt hreinu í tveggja marka sigri Lilleström á meðan Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir var í tapliði Stabæk gegn Avaldsnes.

Þórunn Jónsdóttir var allan tímann á bekknum hjá Avaldsnes sem er í öðru sæti norsku deildarinnar, sjö stigum eftir toppliði Lilleström.

Það eru sjö leikir eftir af norska tímabilinu og ljóst að það þarf eitthvað skrítið að gerast til að Guðbjörg og liðsfélagar hennar í Lilleström hendi forystunni frá sér, enda aðeins búnar að missa af fimm stigum í fimmtán leikjum hingað til.

Sandviken 0 - 2 Lilleström
0-1 E. Haavi ('4)
0-2 E. Haavi ('30)

Avaldsnes 2 - 0 Stabæk
1-0 Y. Rincon ('67)
2-0 Y. Rincon ('69)
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner