Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   lau 29. ágúst 2015 19:02
Elvar Geir Magnússon
Noregur: Jón Daði með sitt níunda mark í sigri
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Viking 2 - 0 Sandefjord
1-0 Zymer Bytyqi ('31)
2-0 Jón Daði Böðvarsson ('50)

Jón Daði Böðvarsson er kominn með níu mörk í norsku úrvalsdeildinni eftir að hafa skorað annað mark Viking í 2-0 sigri gegn Sandefjord í Stafangri.

Jón Daði skoraði með skalla eftir fyrirgjöf André Danielsen.

Jón Daði spilaði allan leikinn fyrir Viking en Björn Daníel Sverrisson og Steinþór Freyr Þorsteinsson komu inn sem varamenn.

Viking er í þriðja sæti með 40 stig að loknum 22 leikjum. Sex leikir eru í deildinni á morgun.

Jón Daði mun nú ferðast til Hollands en hann er að sjálfsögðu í íslenska landsliðshópnum sem leikur í Amsterdam á fimmtudag.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner