Króatíski miðjumaðurinn Marcelo Brozovic gæti verið að færa sig um set frá Inter Milan til Chelsea ef marka má heimildir Goal.com.
Inter hefur samþykkt tilboð Chelsea sem hljóðar upp á 25 milljónir evra og er talið líklegt að Brozovic nái samningum við Lundúnarliðið áður en félagaskiptaglugginn lokar nú um mánaðarmótin.
Brozovic lék 32 leiki í Serie A á síðustu leiktíð og var með Króatíu á EM í Frakklandi en þessi 23 ára gamli miðjumaður á 20 A-landsleiki að baki.
Fari svo að kaupin gangi í gegn verður Brozovic fjórði leikmaðurinn sem gengur til liðs við Antonio Conte og félaga í sumar en áður hafi Chelsea fjárfest í Mitchy Batshuayi, N´Golo Kante og Eduardo.
Athugasemdir