Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mán 29. ágúst 2016 12:39
Magnús Már Einarsson
Paco Alcacer í læknisskoðun hjá Barcelona
Mynd: Getty Images
Barcelona er að kaupa framherjann Paco Alcacer frá Valencia á 30 milljónir evra eða 25,6 milljónir punda.

Paco mætti í læknisskoðun hjá Barcelona í dag.

Þessi 22 ára gamli leikmaður var ekki með Valencia í 1-0 tapi gegn Eibar á laugardaginn.

Samkvæmt fréttum frá Spáni þá mun Paco skrifa undir fimm ára samning við Barcelona áður en hann fer í verkefni með spænska landsliðinu í vikunni.

Paco hefur skorað 25 mörk í 51 leik með Valencia í spænsku úrvalsdeildinni undanfarin tvö ár.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner