Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   mán 29. ágúst 2016 11:26
Magnús Már Einarsson
Tilboð frá Ísrael í Viðar Örn
Mynd: Getty Images
Maccabi Tel Aviv frá Ísrael hefur lagt fram tilboð í Viðar Örn Kjartansson framherja Malmö.

Tilboðið hjlóðar upp á 3,5 milljónir evra samkvæmt frétt Sports Walla í Ísrael en tveir dagar eru í að félagaskiptaglugginn loki.

Viðar er markahæstur í sænsku úrvalsdeildinni í dag með 14 mörk í 20 leikjum.

Viðar skoraði sigurmark Malmö gegn GIF Sundsvall í gær en liðið er með eins stigs forskot á toppnum í Svíþjóð.

Hinn 26 ára gamli Viðar kom til Malmö frá kínverska félaginu Jiangsu Sainty í byrjun árs.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner