Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mán 29. september 2014 16:22
Elvar Geir Magnússon
Aaron Ramsey frá í mánuð að minnsta kosti
Aaron Ramsey.
Aaron Ramsey.
Mynd: Getty Images
Aaron Ramsey, miðjumaður Arsenal, spilar ekki næsta mánuðinn allavega vegna meiðsla aftan í læri.

Góðu fréttirnar fyrir stuðningsmenn Arsenal eru þær að Jack Wilshere verður klár í slaginn til að mæta toppliði Chelsea á sunnudag en er tæpur fyrir Meistaradeildarleikinn gegn Galatasaray á Emirates.

Wilshere snéri sig á ökkla í nágrannaslagnum gegn Tottenham á laugardag.

Meiðsli Ramsey eru alvarlegri og mun hann missa af landsleikjum Wales gegn Bosníu og Kýpur.
Athugasemdir
banner