Leiknir vann 1. deildina í sumar og sópaði til sín verðlaunum á lokahófi deildarinnar síðasta fimmtudag. Fimm leikmenn voru í úrvalsliði ársins, Sindri Björnsson var valinn efnilegastur, Hilmar Árni Halldórsson bestur og Davíð Snorri Jónasson og Freyr Alexandersson bestu þjálfararnir.
Sjá einnig:
Lið ársins og bestu menn í 1. deild 2014
Lið ársins og bestu menn í 2. deild 2014
„Það eru leikmenn í þessari deild eins og Ævar Ingi (Jóhannesson í KA) og Daníel Leó (Grétarsson í Grindavík) sem eru ógeðslega góðir. Þetta er mikill heiður," segir Sindri Björnsson.
Hann var svo spurður út í hárgreiðslu sína meðal annars en viðtalið við Sindra má sjá í spilaranum hér að ofan.
Athugasemdir