Man City ræðir um möguleg kaup á Ait-Nouri - Adarabioyo eftirsóttur - Newcastle vill Sesko
banner
   mán 29. september 2014 19:30
Ívan Guðjón Baldursson
Keane og Lambert neituðu að taka í hönd Mourinho
Hér sést þegar Mourinho klappar Keane á öxlina meðan Írinn hunsar hann.
Hér sést þegar Mourinho klappar Keane á öxlina meðan Írinn hunsar hann.
Mynd: Daily Mail
Paul Lambert, knattspyrnustjóri Aston Villa, og Roy Keane, aðstoðarknattspyrnustjóri, neituðu að taka í hönd Jose Mourinho þegar Chelsea lagði Villa af velli um helgina með þremur mörkum gegn engu.

Ástæðan fyrir því er sú að Mourinho gekk af velli áður en flautað hafði verið til leiksloka, svo Lambert benti á úrið sitt þegar Mourinho rétti honum höndina.

Keane brást ekki við handabandstilraun Mourinho og hunsaði hann algjörlega sem varð til þess að Portúgalinn klappaði honum á öxlina og fór.

Þegar Chelsea lagði Arsenal 6-0 á síðasta tímabili fór Mourinho einnig fyrr af leikvanginum en útskýrði síðar að það hafi verið til að hringja í konu sína og færa henni sigurtíðindin.
Athugasemdir
banner
banner
banner