Belgískir fjölmiðlar greina frá því að Kevin Mirallas, leikmaður Everton, verði frá í fjórar til sex vikur eftir að hafa meiðst aftan í læri í 1-1 jafnteflinu gegn Liverpool á laugardag.
Mirallas mun þá missa af leikjum gegn Krasnodar í Evrópudeildinni ásamt deildarleikjum gegn Manchester United og Aston Villa.
Mirallas mun þá missa af leikjum gegn Krasnodar í Evrópudeildinni ásamt deildarleikjum gegn Manchester United og Aston Villa.
Þá verður hann ekki með Belgum í landsleikjum gegn Andorra og Bosníu.
Mirallas gekk í raðir Everton 2012 en hann er 26 ára.
Athugasemdir