Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 29. september 2014 23:00
Ívan Guðjón Baldursson
Myndband: Januzaj skoraði magnað aukaspyrnumark
Mynd: Getty Images
Manchester United lagði Tottenham af velli í efstu deild undir 21 árs félagsliða og skoraði Adnan Januzaj magnað mark beint úr aukaspyrnu í leiknum.

Staðan var markalaus þegar Januzaj skoraði úr aukaspyrnunni á 87. mínútu en marki Belgans fylgdu tvö önnur mörk á lokakaflanum.

Mínútu síðar jafnaði Nathan Oduwa fyrir Tottenham en Tom Thorpe skallaði hornspyrnu Januzaj inn í uppbótartímanum og gerði út um leikinn.

Boltinn fór yfir markvörðinn og upp í fjærhornið en ekki er ljóst hvort leikmaðurinn hafi verið að reyna skot eða fyrirgjöf.


Athugasemdir
banner
banner