Zidane hefur augastað á Man Utd - Guimaraes áfram hjá Newcastle - Bayern hefur ekki rætt við Rangnick
   fim 29. september 2016 12:30
Magnús Már Einarsson
Benteke yngri frá í langan tíma
Christian Benteke, eldri bróðir Jonathan.
Christian Benteke, eldri bróðir Jonathan.
Mynd: Getty Images
Jonathan Benteke, framherji Crystal Palace, verður frá keppni næstu þrjá til fjóra mánuðina.

Jonathan er yngri bróðir Christian Benteke sem kom til Crystal Palace frá Liverpool í sumar.

Hinn 21 árs gamli Jonathan kom óvænt til Palace frá Belgíu í ágúst.

Hann kom inn á sem varamaður gegn Middlesbrough á dögunum áður en hann meiddist.

„Þessar fréttir eru vonbrigði fyrir bæði félagið og leikmanninn," sagði Alan Pardew, stjóri Palace.
Athugasemdir
banner
banner