Haaland, Toney, Gomes, Diomande, Gyokeres, Southgate, O'Neil, De Zerbi og fleiri góðir í slúðri dagsins
   lau 01. október 2016 09:33
Elvar Geir Magnússon
Lokaumferð Pepsi-deildarinnar - Hvað getur gerst?
Úr leik Fjölnis og Stjörnunnar í 21. umferðinni.
Úr leik Fjölnis og Stjörnunnar í 21. umferðinni.
Mynd: Fótbolti.net - Tomasz Kolodziejski
Kemur Willum KR-ingum í Evrópu.
Kemur Willum KR-ingum í Evrópu.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fylkismenn eru í mjög erfiðri stöðu.
Fylkismenn eru í mjög erfiðri stöðu.
Mynd: Fótbolti.net - Einar Ásgeirsson
Fær Garðar gullskóinn?
Fær Garðar gullskóinn?
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Lokaumferð Pepsi-deildar karla verður í dag laugardag og er mikil spenna í baráttunni um Evrópusæti og í fallbaráttunni. Allir leikirnir verða flautaðir á samtímis klukkan 14 en hér að neðan má sjá einfalda útskýringu á því hvað getur gerst.

Stjarnan er í bestu stöðunni í baráttunni um tvö laus Evrópusæti en Breiðablik, KR og Fjölnir eiga einnig möguleika.

Í fallbaráttunni eru Fylkismenn í vondum málum en Víkingur Ólafsvík er einnig í fallhættu. Mikið þarf að ganga á svo Eyjamenn fari niður.

Breiðablik - Fjölnir

- Breiðablik er svo gott sem öruggt með Evrópusæti með sigri. Tölfræðilega gæti KR með ótrúlegum stórsigri í sínum leik komið í veg fyrir það en það er langsótt.

- Jafntefli gæti dugað Blikum til að ná Evrópusæti en þeir þurfa þá að treysta á að KR vinni ekki eða að Stjarnan tapi fyrir Víkingi Ólafsvík.

- Tapi Breiðablik á liðið engan möguleika á Evrópusæti.

- Til að ná Evrópusæti þarf Fjölnir að vinna Breiðablik og treysta á að KR eða Stjarnan nái ekki að vinna sína leiki.

- Jafntefli dugar Fjölni ekki til að ná Evrópusæti, sama hvernig aðrir leikir fara.

Stjarnan - Víkingur Ó.

- Stjarnan er örugg með Evrópusæti með sigri.

- Jafntefli dugar Stjörnunni til að ná Evrópusæti ef KR vinnur ekki Fylki eða ef leikurinn í Kópavogi endar með jafntefli.

- Tapi Stjarnan á liðið samt nánast öruggt Evrópusæti ef KR vinnur ekki. Sætið tapast ef Stjarnan tapar með fjögurra marka mun og KR gerir jafntefli.

- Víkingur Ólafsvík heldur sæti sínu í deildinni með sigri.

- Sama hvernig leikurinn fer halda Ólsarar sér ef Fylkir vinnur ekki sinn leik.

- Ef Fylkir vinnur dugar jafntefli Ólsurum ekki til að halda sætinu nema ÍBV tapi risastórt fyrir FH sem er ansi langsótt.

KR - Fylkir

- KR nær Evrópusæti með sigri ef Stjarnan eða Breiðablik vinna ekki.

- KR á þó tölfræðilegan möguleika á að ná Evrópusæti með sigri þó bæði Stjarnan og Breiðablik vinna en liðið þarf þá að vinna upp markatölu Blika, munurinn er fjögur mörk.

- Jafntefli gæti nægt KR til að ná Evrópusæti ef Stjarnan tapar með fjögurra marka mun sem er ansi langsótt.

- Tapi KR á liðið engan möguleika á Evrópusæti.

- Fylkir verður að vinna leikinn til að eiga möguleika á að bjarga sæti sínu.

- Fylkir heldur sætinu með sigri ef Víkingur Ólafsvík vinnur ekki Stjörnuna.

- Ef Ólsarar vinna Stjörnuna getur Fylkir tölfræðilega haldið sæti sínu með sigri á ótrúlegan hátt ef ÍBV tapar og Fylkir nær að vinna upp markamuninn á liðunum sem er átta mörk. Ansi fjarlægur möguleiki.

FH - ÍBV

- FH-ingar eru búnir að tryggja sér Íslandsmeistaratitilinn og fá bikarinn eftir leikinn.

- ÍBV er svo gott sem öruggt með sæti sitt í deildinni þó tölfræðilegur möguleiki sé á falli. Önnur úrslit þurfa þá að falla gegn Eyjamönnum og þeir að tapa niður markatölu sinni. Ansi langsótt.

Valur -ÍA

- Bæði lið keppa upp á heiðurinn, sigla lygnan sjó.

- Það má kalla leikinn: Baráttuna um gullskóinn: Garðar Gunnlaugsson (ÍA) er með 14 mörk en Kristinn Freyr Sigurðsson (Val) með 13 mörk.

Þróttur R.-Víkingur R.

- Þróttarar eru fallnir og Víkingar sigla lygnan sjó. Leikur sem snýst bara um að klára tímabilið á jákvæðan hátt.

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net verður framlengdur næsta laugardag vegna lokaumferðar Pepsi-deildarinnar. Þátturinn verður tveggja tíma lengri en venjan er, milli 12 og 16. Fylgst verður með gangi mála á X-inu þar til flautað verður til leiksloka og úrslit ráðast.

Þú getur hlustað á X-ið á netinu með því að smella hérna

Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner