„Það er algjört fagnaðarefni að fá þennan snilling til okkar í Grafarvoginn," segir Ágúst Gylfason, þjálfari Fjölnis, en Ólafur Páll Snorrason verður spilandi aðstoðarþjálfari liðsins í Pepsi-deildinni næsta sumar.
„Hann kemur með þvílíka reynslu frá FH og með marga titla á bakinu og var fyrirliði þar. Það er kærkomið að fá hann. Hann mun koma með sínar hugmyndir og við viljum fá frekari liðsstyrk."
„Það sýnir að það er metnaður í Fjölni að fá svona hvalreka til okkar. Ég vonast til að menn kíki á okkur og við fáum tvo til þrjá menn í kjölfarið."
„Ég held að árið 2015 verði fótboltaár og vonandi verður það ár Fjölnis."
Viðtalið má sjá í heild sinni í sjónvarpinu hér að ofan.
Athugasemdir