Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mið 29. október 2014 21:00
Daníel Freyr Jónsson
Heimild: Mirror 
Arsenal spyrst fyrir um Stephan Lichsteiner
Stephan Lichtsteiner.
Stephan Lichtsteiner.
Mynd: Getty Images
Arsenal hefur spurst fyrir stöðuna á hægri bakverðinum Stephan Lichsteinar, leikmanni Juventus.

Frá þessu greina ítalskir fjölmiðlar, en Lichsteiner hefur verið fastamaður í liði Ítalíumeistarana undanfarin þrjú ár.

Giuseppe Marotta, framkvæmdastjóri Juventus, hefur lýst yfir áhuga á að framlengja samning Svisslendingsins og hafa viðræður átt sér stað við umboðsmann hans.

Inter er einnig sagst fylgjast með samnigsmálum Lichsteiner.

Áhugi Arsenal er nokkuð óvæntur þar sem liðið fékk þá Mathieu Debuchy og Calum Chambers í sumar, sem báðir spila í bakvarðastöðunni.
Athugasemdir
banner
banner
banner