Kristinn Steindórsson mun yfirgefa herbúðir Halmstad eftir tímabilið en Hallandsposten greinir frá þessu í dag.
Kristinn hefur spilað 28 af 29 leikjum Halmstad í sænsku úrvalsdeildinni á þessu tímabili.
Þessi 24 ára gamli leikmaður hefur skorað átta mörk en hann var á skotskónum gegn Falkenbergs um síðustu helgi.
Kristinn verður samningslaus eftir tímabilið og samkvæmt frétt Hallandsposten mun hann róa á önnur mið.
Halmstad er í níunda sæti í sænsku úrvalsdeildinni en Guðjón Balvinsson er einnig á förum frá félaginu því hann gengur í raðir Nordsjælland í Danmörku þegar samningur hans rennur út um áramót.
Athugasemdir