Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   lau 29. nóvember 2014 06:00
Magnús Már Einarsson
Ólafur Hlynur tekur við Hamri (Staðfest)
Frá undirskrift.
Frá undirskrift.
Mynd: Hamar
Ólafur Hlynur Guðmarsson hefur verið ráðinn sem þjálfari meistarflokks Hamars í Hveragerði en skrifað var undir samning í Hamarshöllinni í fyrradag.

Ólafur þjálfaði kvennalið í Danmörku áður en hann kom til Íslands árið 2012 þar sem hann tók við kvennaliði Fjarðabyggðar. Í sumar þjálfaði Ólafur síðan KB í 4. deild karla.

Ólafur starfar einnig sem yngri flokka þjálfari hjá Breiðabliki en þar þjálfar hann 4. og 3 flokk karla.

Ingólfur Þórarinsson þjálfaði Hamar en liðið féll úr 3. deildinni í sumar eftir að hafa fallið úr 2. deildinni í fyrra.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner