West Ham tekur á móti West Brom eftir innan við klukkustund og hafa byrjunarliðin verið staðfest.
Diafra Sakho er fremsti maður Hamranna sem geta komist í sjötta sæti með sigri.
Diafra Sakho er fremsti maður Hamranna sem geta komist í sjötta sæti með sigri.
Dimitri Payet er frá vegna meiðsla og hefur Manuel Lanzini verið aðalmaður West Ham í fjarveru Payet. Þá hefur Victor Moses einnig verið að gera gott mót, rétt eins og Cheikhou Kouyate sem leikur á miðjunni.
Salomon Rondon er fremstur í liði gestanna sem unnu glæsilegan sigur á Arsenal í síðustu umferð. Saido Berahino er áfram á bekknum hjá West Brom og herma orðrómar að hann verði líklega seldur í janúar.
Sigur í dag kemur West Brom í ellefta sæti deildarinnar og 20 stig, sem er helmingurinn af stigafjöldanum sem félag þarf til að halda sér í úrvalsdeildinni.
West Ham: Adrian, Jenkinson, Reid, Ogbonna, Cresswell, Obiang, Kouyate, Zarate, Lanzini, Moses, Sakho
West Brom: Myhill, Dawson, Evans, Olsson, McAuley, McClean, Yacob, Fletcher, Morrison, Sessegnon, Rondon
Athugasemdir