Philippe Mexes, varnarmaður AC Milan, hvetur liðsfélaga sína til að setja stefnuna á Meistaradeildarsæti í ár.
AC Milan hefur ekki komist í Meistaradeildina undanfarin tvö tímabil og segir Frakkinn það ekki vera boðlegt hjá félagi eins og þessu.
„Það er pirrandi af því að Milan ætti að vera í Meistaradeildinni á hverju ári”, segir Mexes.
„Við þurfum að koma okkur aftur í þann gæðaflokk og setja okkur háleit markmið”.
AC Milan situr í 5.sæti Serie A eftir fjórtán leiki en liðið hefur verið að koma til eftir dapra byrjun.
Athugasemdir