Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   sun 29. nóvember 2015 19:10
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Spánn: Aduriz sá um Rayo Vallecano
Aduriz setti þrennu
Aduriz setti þrennu
Mynd: Getty Images
Rayo Vallecano 0 - 3 Athletic
0-1 Aritz Aduriz ('1 )
0-2 Aritz Aduriz ('24 , víti)
0-3 Aritz Aduriz ('60 )
Rautt spjald:Aymeric Laporte, Athletic ('65)

Þriðja leik dagsins í La Liga var að ljúka, en þar mættust Rayo Vallecano og Athletic Bilbao.

Fyrsta mark leiksins kom strax á fyrstu mínútu, en þar var að verki hinn sjóðheiti Aritz Aduriz.

Aduriz var svo aftur á ferðinni á 24. mínútu, en þá skoraði hann úr vítaspyrnu. Staðan var þess vegna 2-0 fyrir gestina frá Bilbao í hálfleik.

Aduriz var ekki hættur en eftir klukkutíma leik fullkomnaði hann þrennuna, en stuttu eftir það fékk varnamaðurinn efnilegi, Aymeric Laporte, að líta rauða spjaldið.

3-0 fyrir Athletic Bilbao var lokaniðurstaðan í þessum leik, en með sigrinum fór Athletic upp í sjöunda sæti 20 stig, en Rayo er með 14 stig í 14. sæti.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner