Eibar 0 - 2 Real Madrid
0-1 Gareth Bale ('43 )
0-2 Cristiano Ronaldo ('82 , víti)
0-1 Gareth Bale ('43 )
0-2 Cristiano Ronaldo ('82 , víti)
Öðrum leik dagsins í La Liga var að ljúka, en Real Madrid heimsótti þar spútniklið deildarinnar, Eibar.
Fyrri hálfleikurinn var frekar bragðdaufur, en Real tók þó forystuna í lok hálfleiksins og var þar að verki Gareth Bale.
Staðan því 1-0 í hálfleik, en Cristiano Ronaldo bætti síðan við marki úr vítaspyrnu á 82. mínútu og sigur gestanna frá Madrid því staðreynd, en hann var þó ekki sannfærandi.
Eftir sigurinn er Real Madrid komið upp í 27 stig í þriðja sæti deildarinnar, en Eibar er með 20 stig í sjöunda sæti.
Athugasemdir