Sevilla 1 - 0 Valencia
1-0 Sergio Escudero ('50 )
Rautt spjald: ,Joao Cancelo, Valencia ('35) Javi Fuego, Valencia ('78)
1-0 Sergio Escudero ('50 )
Rautt spjald: ,Joao Cancelo, Valencia ('35) Javi Fuego, Valencia ('78)
Lokaleik kvöldsins í La Liga var að ljúka, en þar tók Sevilla á móti Valencia.
Fyrri hálfleikurinn var markalaus, en fyrsta mark leiksins kom snemma í seinni hálfleik og var þar að verki Sergio Escudero fyrir Sevilla, en áður hafði Joao Cancelo, leikmanni Valencia, verið vikið af velli.
Valencia missti síðan annan leikmann af velli á 78. mínútu þegar Javi Fuego fékk að líta sitt annað gula spjald. Sevilla náði þó ekki að bæta við marki þrátt fyrir að hafa haldið boltanum vel innan liðsins og lokastaðan í þessum leik því 1-0 fyrir Sevilla.
Með sigrinum fór Sevilla upp í tíunda sætið með 18 stig, en Valencia er með 19 stig í níunda sætinu.
Athugasemdir