Arsenal endurnýjar áhuga á Luiz - Man Utd reynir við Todibo - Tottenham vill Sudakov
   sun 29. nóvember 2015 07:00
Arnar Geir Halldórsson
Thiago Silva vill enda ferilinn hjá PSG
Sigursæll
Sigursæll
Mynd: Getty Images
Brasilíski varnarjaxlinn Thiago Silva segist vilja enda ferilinn sinn hjá PSG.

Þessi 31 árs gamli miðvörður á tvö ár eftir af samningi sínum við Parísarliðið og segist ekki geta hugsað sér að yfirgefa félagið.

„Ég vil spila hérna út ferilinn. Ég þarf að tala við forsetann og athuga hvort hann sé sammála mér.”

„Ég elska þessa borg eins og ég elska Rio de Janeiro. Fjölskyldan mín er hérna og sonur minn hefur alist upp hér. Ég hef allt sem þarf.”


PSG hefur unnið franska titilinn þrjú ár í röð og er langefst í deildinni þessa dagana.

Athugasemdir
banner
banner
banner
banner