Chelsea og Fiorentina hafa náð samkomulagi um félagaskipti Juan Cuadrado en þetta segja heimildir Sky Sports.
Cuadrado gæti, ef allt gengur upp, spilað sinn fyrsta leik með Chelsea þegar liðið fær Manchester City í heimsókn í toppslag á morgun.
Cuadrado gæti, ef allt gengur upp, spilað sinn fyrsta leik með Chelsea þegar liðið fær Manchester City í heimsókn í toppslag á morgun.
Chelsea mun borga 23,33 milljónir punda fyrir Cuadrado en þrjár milljónir punda gætu bæst við ef að leikmaðurinn stendur sig vel á Englandi.
Fiorentina mun einnig fá Mohamed Salah frítt á láni frá Chelsea í eitt og hálft ár.
Cuadrado á að fylla skarð Andre Schurrle sem er að fara frá Chelsea til Wolfsburg á tuttugu milljónir punda.
Athugasemdir