Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fös 30. janúar 2015 09:30
Magnús Már Einarsson
Cuadrado færist nær Chelsea - Schurrle á leið til Wolfsburg
Juan Cuadrado kennir Micah Richards að dansa.
Juan Cuadrado kennir Micah Richards að dansa.
Mynd: Getty Images
Chelsea er nálægt því að ganga frá samkomulagi við Fiorentina um kaup á kantmanninum Juan Cuadrado.

Fiorentina hefur viljað fá 26,8 milljónir punda fyrir Cuadrado en líklegt er að niðurstaðan verði sú að Chelsea borgi 25 milljónir punda og láni Mohamed Salah einnig til ítalska félagsins út tímabilið.

Cuadrado mun koma inn í lið Chelsea fyrir kantmanninn Andre Schurrle sem er á leið til Wolfsburg í heimalandi sínu Þýskalandi.

Hinn 24 ára gamli Schurrle hefur sjálfur náð samningum við Wolfsburg en verið er að ganga frá samkomulagi á milli félaganna.

Talið er að Wolfsburg muni borga um það bil tuttugu milljónir punda fyrir Schurrle.
Athugasemdir
banner
banner
banner