Kjartan Henry Finnbogason skoraði eitt mark þegar Horsens sigraði Frederica 3-2 í æfingaleik í dag.
Kjartan Henry kom til Horsens frá KR síðastliðið sumar.
Hann spilaði lítið með liðinu í fyrri hluta tímabils í Danmörku vegna meiðsla.
Horsens situr í 5. sæti í dönsku B-deildinni en keppni þar hefst aftur eftir vetrarfrí í mars.
Athugasemdir