Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fös 30. janúar 2015 12:08
Magnús Már Einarsson
Larsson vill losna við Arnór - Of dýr fyrir Helsingborg
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Arnór Smárason er á förum frá Helsingborg en sænska félagið vill losna við hann af launaskrá.

Henrik Larsson, þjálfari Helsingborg, telur að Arnór sé á of háum launum og vill selja hann af fjárhagsástæðum.

,,Henke hefur sagt sjálfur að þetta er ekki af fótboltalegum ástæðum heldur fjárhagslegum," sagði Arnór við sænska fjölmiðla.

,,Ég þarf að taka þessu. Ég var hissa þegar hann sagði þetta. Félagið keypti mig og gerði samning sem ég á tvö ár eftir af."

Arnór kom til Helsingborg frá Esbjerg í Danmörku um mitt sumar 2013.
Athugasemdir
banner
banner