Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 30. janúar 2015 21:15
Magnús Már Einarsson
Man Utd ekki búið að bjóða í Clyne
Mynd: Getty Images
Ronald Koeman, stjóri Southampton, segir að Manchester United hafi ekki lagt fram tilboð í hægri bakvörðinn Nathaniel Clyne.

Clyne hefur vakið verðskuldaða athygli með Southampton á þessu tímabili en hann á eitt og hálft ár eftir af samningi sínum við félagið.

,,Það hafa verið ýmsar sögusagnir í gangi en það hefur ekker tilboð borist í Clyne. Við höfum ekki heyrt neitt í Manchester United."

,,Það eru engar fréttir varðandi hann í augnablikinu en félagið er í viðræðum við hann um nýjan samning."
Athugasemdir
banner
banner
banner