Zidane hefur augastað á Man Utd - Guimaraes áfram hjá Newcastle - Bayern hefur ekki rætt við Rangnick
   fös 30. janúar 2015 12:20
Magnús Már Einarsson
Mynd: Afmæliskaka Turan var takkaskór
Mynd: Twitter
Arda Turan, miðjumaður Atletico Madrid, fagnar 28 ára afmæli sínu í dag.

Turan komst í fréttirnar í fyrrdag þegar hann henti takkaskó sínum í átt að aðstoðardómara í leik gegn Barcelona í spænska bikarnum.

Atvikið vakti mikla athygli en Turan slapp með gult spjald fyrir athæfið.

Vinir Turan ákváðu að gera grín að atvikinu með því að útbúa afmælisköku handa honum sem var eins og takkaskór.

Myndina má sjá hér til hliðar.

Fyrir neðan má sjá þegar Turan henti takkaskónum í átt að aðstoðardómaranum.


Athugasemdir
banner
banner