Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 30. janúar 2015 19:00
Magnús Már Einarsson
Reiknað með að Alfreð byrji á bekknum gegn Real Madrid
Mynd: Getty Images
Reiknað er með að Alfreð Finnbogason byrji á varamannabekk Real Sociedad þegar liðið heimsækir Real Madrid í spænsku úrvalsdeildinni á morgun.

Imanol Agirretxe mun væntanlega byrja frammi en Alfreð var í byrjunarliðinu í nokkrum leikjum í desember þegar sá fyrrnefndi var meiddur.

Cristiano Ronaldo verður ekki með Real Madrid en hann er í banni eftir rauða spjaldið gegn Cordoba um síðustu helgi.

Real Madrid hefur harma að hefna síðan liðið tapaði gegn Real Sociedad í fyrri leik liðanna á tímabilinu.

Hér að neðan má sjá líkleg byrjunarlið að mati AS.
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner