Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fös 30. janúar 2015 15:21
Elvar Geir Magnússon
Sadiq El Fitouri fékk samning hjá Man Utd (Staðfest)
Sadiq El Fitouri við undirskriftina.
Sadiq El Fitouri við undirskriftina.
Mynd: Heimasíða Manchester United
Skiljanlega hefur þessi fyrirsögn vakið áhuga ykkar. Hægri bakvörðurinn Sadiq El Fitouri hefur fengið 18 mánaða samning hjá Manchester United.

Þessi tvítugi leikmaður fær tækifæri til að sýna sig og sanna hjá U21-liði United en hann fæddist í Líbýu.

„Ég er mjög spenntur að sjá hvað gerist næst. Þetta er frábært tækifæri og að fá það hjá Manchester United er virkilega sérstakt," sagði El Fitouri.

Hann fékk ekki áframhaldandi samning hjá Manchester City en Paul Scholes og Phil Neville fengu hann til Salford City sem leikur í utandeildinni. Hann stóð sig vel og fékk í kjölfarið samning hjá United.

Nú er bara spurning hvort El Fitouri muni komast í aðallið Manchester United með tímanum. Líkurnar eru ekki miklar en miði er möguleiki!
Athugasemdir
banner
banner
banner