Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   fös 30. janúar 2015 10:27
Magnús Már Einarsson
Wenger: Ég get gefið þér heimilisfangið mitt
Wenger er til í að opna dyrnar ef frábær leikmaður bankar upp á.
Wenger er til í að opna dyrnar ef frábær leikmaður bankar upp á.
Mynd: Getty Images
Arsene Wenger, stjóri Arsenal, sló á létta strengi þegar hann var spurður út í mögulegan liðsstyrk á fréttamannafundi í morgun.

Wenger keypti varnarmanninn Gariel Paulista frá Villarreal í vikunni og reiknar ekki með að fá fleiri menn áður en glugginn lokar á mándag.

Fréttamaður: Ætlar þú að kaupa fleiri leikmenn áður en félagaskiptaglugginn lokar?
Wenger: Ef ég vakna í fyrramálið og einhver stórkostlegur leikmaður stendur fyrir framan dyrnar hjá mér þá mun ég opna dyrnar. Það er mjög ólíklegt núna.
Fréttamaður? Er það mjög ólíklegt?
Wenger: Ég get gefið þér heimilisfangið mitt ef þú vilt.
Fréttamaður: Er einhver sérstök staða á vellinum sem þú þarft að styrkja?
Wenger: Við erum í fínu lagi núna. Bæði hvað varðar breidd og gæði.
Athugasemdir
banner
banner
banner