Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 30. mars 2015 06:00
Alexander Freyr Tamimi
Muller hefði viljað sjá Þýskaland skora fleiri mörk
Mynd: Gaman ferðir
Thomas Muller, sóknarmaður Þýskalands, hefði viljað sjá landsliðið nýta færin sín betur gegn Georgíu í undankeppni EM 2016 í gær.

Þjóðverjar unnu nokkuð þægilegan 2-0 sigur þökk sé mörkum frá Muller og Marco Reus í fyrri hálfleik, en sá fyrrnefndi hefði viljað sjá boltann oftar í netinu.

,,Ég held að lykillinn að sigrinum hafi verið sá að við vorum mikið inni á þeirra vallarhelmingi. Við gáfum ekki alltaf réttu sendinguna og töpuðum boltanum of oft," sagði Muller við heimasíðu þýska knattspyrnusambandsins.

,,Í seinni hálfleik hefðum við getað gert okkur auðveldara fyrir. Tilfinningar mínar eru blendnar því við byrjuðum vel en náðum ekki að skora eftir hlé. En það er gott að klifra upp töfluna."
Athugasemdir
banner
banner