Breska dagblaðið The Sun heldur því fram að Chelsea muni bjóða 40 milljónir punda í Raphael Varane, varnarmann Real Madrid, í sumar.
Franski landsliðsmaðurinn hefur verið sterklega orðaður við Lundúnaliðið undanfarin misseri, en Jose Mourinho gaf leikmanninum einmitt sinn fyrsta leik fyrir Real Madrid árið 2011.
Varane er enn fyrir aftan þá Pepe og Sergio Ramos í goggunarröðinni hjá Real Madrid, en talið er að Mourinho sjái hann og Kurt Zouma fyrir sér sem framtíðarmiðvarðarpar Chelsea.

John Terry, 34 ára gamall, skrifaði fyrir stuttu undir árs framlengingu á samningi sínum hjá Chelsea en þrátt fyrir það vill Mourinho styrkja vörnina.
Athugasemdir