Portúgal vann 2-1 sigur gegn Serbíu á sunnudagskvöld og er á toppi I riðils í undankeppni EM 2016.
Luis Nani, kantmaður Portúgals, viðurkennir að um gríðarlega dýrmætan sigur hafi verið að ræða. Fabio Coentrao skoraði sigurmarkið einungis tveimur mínútum eftir að Nemanja Matic hafði jafnað metin fyrir Serba.

,,Við urðum að vinna! Við erum vanir því að fá á okkur mörk úr föstum leikatriðum en við komumst aftur á rétta braut því við vissum að við yrðum að sigra," sagði Nani.
,,Markið hans Matic hefði getað brotið okkur en við urðum að halda ró okkar. Vi ðgerðum það. Við vissum hvað við vildum og við náðum því."
Athugasemdir