banner
   mán 30. mars 2015 14:20
Brynjar Ingi Erluson
Pato opinn fyrir því að spila fyrir Inter
Það var alltaf mikil ást í fögnum Pato
Það var alltaf mikil ást í fögnum Pato
Mynd: Getty Images
Alexandre Pato, leikmaður Sao Paulo í Brasilíu, segist opinn fyrir því að leika með Internazionale á Ítalíu.

Pato, sem er 25 ára gamall, var einn efnilegasti framherji heims fyrir átta árum síðan er hann gekk til liðs við AC Milan.

Hann eyddi fimm árum hjá ítalska félaginu áður en hann var seldur til Corinthians en Pato átti við mikið af meiðslum að stríða hjá Milan.

Hann er núna orðaður við Inter, nágranna Milan, og viðurkennir hann að það yrði hans erfitt að hafna því tækifæri.

,,Inter er frábært lið. Maður veit aldrei hvað gerist í fótboltanum," sagði Pato.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner