Barcelona vill Díaz frá Liverpool - Úlfarnir skoða markverði - City til í að hlusta á tilboð í Grealish
   mán 30. mars 2015 09:14
Magnús Már Einarsson
Rúnar Már kallaður inn í landsliðið
Icelandair
Mynd: Heimasíða GIF Sundsvall
Rúnar Már Sigurjónsson hefur verið kallaður inn í íslenska landsliðshópinn fyrir vináttuleikinn gegn Eistum á morgun.

Eiður Smári Guðjohnsen og Aron Einar Gunnarsson verða ekki með í leiknum á morgun.

Aron Einar er nýorðinn faðir og Eiður Smári á von á barni á næstu dögum.

Ólafur Ingi Skúlason var kallaður inn í hópinn í gær og Rúnar Már er nú einnig kominn inn.

Rúnar Már leikur með GIF Sundsvall í Svíþjóð en hann á þrjá landsleiki að baki.

Vináttuleikur Íslands og Eistlands hefst klukkan 16:00 á morgun og verður sýndur beint á Skjá Sport.
Athugasemdir
banner
banner
banner