„Við erum klárir og það er mikil tilhlökkun í hópnum," segir varnarmaðurinn Bergsveinn Ólafsson, fyrirliði Fjölnis, fyrir fyrstu umferð Pepsi-deildarinnar.
Grafarvogsliðið á leik gegn ÍBV á heimavelli á sunnudag klukkan 17.
Grafarvogsliðið á leik gegn ÍBV á heimavelli á sunnudag klukkan 17.
„Við erum að æfa sex til sjö mánuði á ári og bíða eftir því að þetta fari af stað. Við vinnum allan veturinn að því að spila í byrjun maí. Menn verða eins og beljur á sumrin að fá að hlaupa aðeins úti á grasinu."
Fölni er spáð níunda sæti í deildinni í sumar.
„Það er kannski eðlilegt að okkur sé spáð í neðri hlutann miðað við undirbúningstímabilið. Á köflum spiluðum við mjög vel en svo komu kaflar þar sem við vorum ekki nægilega góðir. Spá er bara spá, við gerum okkar besta og sjáum hvert það hleypir okkur."
„Það skiptir gríðarlegu máli að byrja mótið vel þó það sé enginn heimsendir að byrja þetta í einhverju rugli. Á góðum degi getum við unnið hvaða lið sem er."
FH er spáð Íslandsmeistaratitlinum. Er Bergsveinn sammála þeirri spá?
„Ég held að FH taki þetta en það gleymist oft hvað KR er komið með sterkt lið. Fyrstu ellefu hjá KR eru ekkert mikið verri en fyrstu ellefu hjá FH. Svo er Stjarnan með hrikalega öflugt lið," segir Bergsveinn en viðtalið má sjá hér að neðan.
Athugasemdir