Arsenal tekur á móti Norwich í lokaleik dagsins í ensku úrvalsdeildinni.
Byrjunarlið beggja liða eru hefðbundin og er þessi leikur gríðarlega mikilvægur fyrir bæði félög.
Byrjunarlið beggja liða eru hefðbundin og er þessi leikur gríðarlega mikilvægur fyrir bæði félög.
Heimamenn í Arsenal þurfa sigur í baráttunni um 3. sætið á meðan Norwich þarf sigur í fallbaráttunni, en liðið er komið niður í næstneðsta sæti deildarinnar eftir tvö töp í röð gegn öðrum fallbaráttuliðum.
Jack Wilshere og Santi Cazorla eru báðir á bekknum hjá Arsenal og koma líklega við sögu eftir að hafa verið lengi frá vegna meiðsla, en Aaron Ramsey byrjar á miðjunni ásamt Mohamed Elneny.
Cameron Jerome er fremstur hjá gestunum, Wes Hoolahan er í holunni og Nathan Redmond og Robbie Brady eru á köntunum.
Arsenal: Cech, Bellerin, Koscielny, Mertesacker, Monreal, Ramsey, Elneny, Iwobi, Sanchez, Ozil, Giroud
Norwich: Ruddy; Pinto, Martin, Bassong, Olsson; Redmond, Howson, O'Neil, Brady; Hoolahan; Jerome
Athugasemdir